UPPHAFSSÍÐA
Á döfinni
Fréttir
Kort
Starfsemi í Reykholti
Bakhjarlar
Skipurit
Skipulagsskrá - samn.
Hugvísindastofnun
Starfið framundan
Eldri viðburðir
Ferðamannaþjónusta
Gisti- og fundaraðstaða
Útgáfur
Námskeið
Rannsóknir
Miðlun
Bókhlaða
Saga Reykholts
Saga Snorrastofu
Starfsmenn
Reykholtskirkja
Heimasíða Reykholts
Tenglar
 

  

Skipulagsskrá

Snorrastofu í Reykholti

 

1. gr.

    Snorrastofa í Reykholti er sjálfseignarstofnun með sérstaka stjórn. Heimili og varnarþing er í Reykholti í Borgarfirði. Stofnunin ber ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eigum sínum. Hún er ekki háð neinum öðrum lögaðilum.

 

2. gr.

    Stofnendur Snorrastofu í Reykholti eru: Héraðsnefnd Borgar-fjarðarsýslu, héraðsnefnd Mýrasýslu, Reykholtsdalshreppur, Reyk-holtskirkja og menntamálaráðuneytið.

 

    Stofnendur leggja fram 500 þúsund króna stofnframlag til stofnunarinnar sem skal vera óskerðanlegur höfuðstóll og ávaxta skal með tryggilegum hætti. Ríkissjóður leggur fram 40% stofnframlags og aðrir 15% hver.

 

3. gr.

    Snorrastofa í Reykholti er safn um Snorra Sturluson og þar er veitt fræðsla um norræna sögu og bókmenntir sem tengjast Snorra Sturlusyni. Stofnuninni er einnig ætlað að kynna sögu Reykholts og Borgarfjarðarhéraðs sérstaklega. Starfsemi Snorrastofu í Reykholti fer fram í samnefndu húsi í Reykholti í Borgarfirði samkvæmt sérstöku samkomulagi.

    Í Snorrastofu í Reykholti er starfrækt bókhlaða, þar sem safnað skal sérstaklega verkum Snorra Sturlusonar og heimildum um hann. Í bókhlöðu fer fram bókasafnsþjónusta fyrir skóla í Reykholti samkvæmt nánara samkomulagi. Einnig er heimilt að þar fari fram almenn bókasafnsþjónusta samkvæmt lögum um almenningsbókasöfn, enda verði um það samkomulag við hlutaðeigandi sveitarfélög.

    Í Snorrastofu í Reykholti er starfrækt gestastofa þar sem inn-lendum og erlendum fræði-, vísinda-, og listamönnum skal gefinn kostur á að dvelja um lengri eða skemmri tíma til að sinna viðfangs-efnum sínum.

    Á vegum Snorrastofu í Reykholti er veitt upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn með hverskyns sýningum og kynningum um Snorra Sturluson og sögu staðarins og íslenska menningu.

    Heimilt er að fela Snorrastofu í Reykholti að hafa umsjón með fornminjum í Reykholti undir yfirumsjón Þjóðminjasafns Íslands samkvæmt þjóðminjalögum að fengnu samþykki þjóðminjaráðs.

 

4. gr.

    Stjórn Snorrastofu í Reykholti er skipuð fímm mönnum til fjögurra ára í senn og skal skipunartími stjórnarinnar vera sá sami og kjörtímabil sveitarstjórna. Héraðsnefnd Borgarfjarðarsýslu, héraðs-nefnd Mýrasýslu og Reykholtsdalshreppur skipa hver sinn fulltrúa í stjórnina, Reykholtskirkjusókn skipar einn fulltrúa, sem kosinn er af aðalsafnaðarfundi og menntamálaráðherra skipar einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu Stofnunar Sigurðar Nordals. Varafulltrúar skulu skipaðir með sama hætti. Stjórnarmaður sá, sem skipaður er af Reykholtskirkjusókn er formaður stjórnar, sem að öðru leyti skiptir með sér verkum.

 

5. gr.

    Stjórn Snorrastofu í Reykholti ber að vinna að markmiðum stofnunarinnar. Stjórnin ber ábyrgð á rekstri, fjárhag og eignum stofnunarinnar og kemur fram fyrir hennar hönd gagnvart þeim sem veita henni fjárhagslegan stuðning. Stjórnin ákveður meginþætti í stefnu og starfstilhögun stofnunarinnar og setur sér og stofnuninni starfsreglur.

    Boða skal stjórnarfundi með tryggilegum hætti. Enga mikilvæga ákvörðun má taka fyrir hönd stofnunarinnar nema stjórnin sé fullskipuð. Stjórnarmaður má ekki taka þátt í meðferð einstaks máls ef málefni sem fyrir liggur til ákvörðunar varðar hann persónulega.

 

6. gr.

    Stjórn Snorrastofu í Reykholti ræður forstöðumann, sem annast daglegan rekstur og setur honum erindisbréf. Forstöðumaðurinn ber ábyrgð gagnvart stjórn stofnunarinnar. Forstöðumaðurinn undirbýr fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár, sem skal lögð fyrir stjórnina fyrir 1. apríl ár hvert. Forstöðumaðurinn vinnur að fjáröflun og annast reikningsskil.

 

7.  gr.

    Tekjur Snorrastofu í Reykholti auk vaxta af stofnframlagi eru frjáls framlög frá ríki og sveitarfélögum, tekjur af þjónustu auk frjálsra framlaga frá einstaklingum, fyrirtækjum og samtökum og annars aflafjár.

    Tekjum og eignum Snorrastofu í Reykholti má einvörðungu verja í þeim tilgangi sem samrýmist markmiðum stofnunarinnar.

 

8. gr.

    Til þess að stofnunin geti náð megintilgangi sínum er stjórninni heimilt fyrir hönd stofnunarinnar að eiga samstarf við aðra aðila þ.m.t. stofnaðila og gerast í því skyni aðili að samstarfssamningi um lengri eða skemmri tíma.

 

9. gr.

    Reikningsár Snorrastofu í Reykholti er frá 1. janúar til 31. desember ár hvert. Forstöðumaður skal í fyrstu viku marsmánaðar leggja eftirfarandí gögn fyrir stjórn Snorrastofu til afgreiðslu:

    1.  Skýrslu um starfsemi síðasta starfsárs.

    2.  Endurskoðaðan ársreikning liðins starfsárs.

    Reikningar Snorrastofu í Reykholti skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda, sem skipaður er af stjórn til a.m.k. tveggja ára í senn. Endurskoðaðir reikningar skulu sendir Ríkisendurskoðun eigi síðar en 30. júní ár hvert fyrir næstliðið ár ásamt skýrslu um hvernig fé stofnunarinnar hefur verið ráðstafað á því ári. Um reikningshald fer að lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.

 

10. gr.

    Leita skal staðfestingar dómsmálaráðherra á skipulagsskrá þessari. Skipulagsskránni verður aðeins breytt með samþykki allra stjórnarmanna og skulu þær hljóta staðfestingu dómsmálaráðherra.

    Stofnuninni verður slitið með sameiginlegri ákvörðun stofnenda.

Verði starfsemi Snorrastofu í Reykholti hætt og stofnunin lögð niður skulu eignir hennar renna til eflingar rannsóknum á íslenskum fræðum.

 

    Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.

 

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 28. september 1995.

 

F.h.r.

Ólafur W. Stefánsson

 

________

Jón Thors.

 

 

Samkomulag um rekstur Snorrastofu

Með hliðsjón af áformum um að stuðla að iðkun miðaldafræða í Reykholti innan vébanda Snorrastofu en með samstarfsaðild innlendra og erlendra fræðastofnana, sbr. tillögur nefndar sem menntamálaráðuneytið skipaði og skilaði álitsgerð í febrúar 1999, gera menntamálaráðuneytið (kt. 460269-2969) og Snorrastofa í Reykholti, sjálfseignarstofnun (kt.410396-2039), með samþykki Reykholtskirkju (kt. 530269-4509), með sér svofellt samkomulag um breytingu á samningi, dags. 11. júní 1996, milli framangreindra aðila um starfsemi sjálfseignarstofnunarinnar Snorrastofu í Reykholti og framlög vegna hennar.

 

Frá undirritun þessa samkomulags orðast 1. og 2. málsgr. 3. greinar samningsins svo:

 

Menntamálaráðuneytið veitir árin 2000 - 2003 framlag til uppbyggingar húseignarinnar Snorrastofu í Reykholti sem hér segir: 8 milljónir króna árið 2000, og síðan 6 milljónir króna árlega næstu þrjú ár. Ekki verður um að ræða frekari framlög til byggingarinnar af hálfu menntamálaráðuneytisins.

 

Menntamálaráðuneytið greiðir árið 2000 framlag að fjárhæð allt að 5 milljónum króna og árin 2001-2004 allt að 5,6 milljónum króna árlega til reksturs bókhlöðu og annarrar starfsemi á vegum Snorrastofu, sbr. 1. gr., enda fáist a.m.k. 2 milljóna króna árlegt framlag samtals frá öðrum stofnaðilum. Af hinu árlega framlagi er 1 milljón króna til viðhalds og eflingar bókasafns dr. Jakobs Benediktssonar, sem afhent hefur verið Snorrastofu, og 600 þús. krónur til þátttöku í umhirðu Reykholtsstaðar. Gert er ráð fyrir að framlagið vegna bókasafns dr. Jakobs Benediktssonar haldist óskert til ársins 2008, sbr. yfirlýsingu menntamálaráðuneytisins, dags. 17. mars 1998.

 

Samkomulag þetta er gert í fjórum samhljóða eintökum.

 

 

Reykjavík, 4. janúar 2000.

 

 

F.h. menntamálaráðuneytisins

Björn Bjarnason

 

F.h. Snorrastofu í Reykholti

Bjarni Guðmundsson

 

Samþykkt f.h. Reykholtskirkju

Geir Waage og Bjarni Guðráðsson

 

Samþykkt f.h. fjármálaráðuneytisins

Karitas H. Gunnarsdóttir